Fóðurráðgjöf hrossa
Fáðu ráðgjöf fyrir þína hjörð
Fóðurráðgjöf hrossa
Til þess að geta nýtt sér fóðurráðgjöf við fóðrun hrossa þarf að byrja á því að efnagreina heysýni. Þegar niðurstaða efnagreiningarinnar liggur fyrir bjóða ráðunautar RML upp á túlkun á niðurstöðum. Út frá niðurstöðum efnagreiningarinnar má síðan vinna fóðuráætlun/áætlanir og jafnframt veita ráðgjöf við fóðrun hrossa, hvort sem um er að ræða einstaklingsfóðrun eða fóðrun fyrir ákveðna hópa.


