Logo
Logo

Greiðsluskilmálar

Reikningsviðskipti og greiðslufrestur

1. Almennir skilmálar

  • Reikningar frá RML eru gefnir út mánaðarlega nema um sé að ræða ráðgjafarpakka eða verkefni sem samið hefur verið um að innheimta sjaldnar.
  • Reikningar vegna forrita fara út einu sinni á ári en hægt er að óska eftir mánaðargreiðslum. Upplýsingar veitir tolvudeild@rml.is.
  • Reikningar fyrir dkbúbót fara út á tveggja mánaða fresti. Fyrirspurn vegna reikninga á að senda á hjalmar@rml.is.
  • Greiðslufrestur í reikningsviðskiptum hjá RML eru yfirleitt 20 dagar.  Sé krafa ógreidd að þeim tíma liðnum fer hún í innheimtu hjá Inkasso.
  • Aðrar fyrirspurnir vegna bókhalds og reikninga, fyrir hreyfingayfirlit og fleira varðandi bókhald skal senda á bokhald@rml.is

2. Kynbótasýningar

Kynbótasýningar hrossa greiðast við pöntun á bókunarsíðu sem opnuð er á vorin þegar sýningar eru auglýstar. Reglur sem gilda um forföll og endurgreiðslur eða niðurfellingu sýningar, eru kynntar sérstaklega á heimasíðu okkar ár hvert.

3. Örmerkjabækur

Örmerkjabækur eru staðgreiddar í gegnum vefverslun. Viðskiptavinur getur valið um að sækja á tilgreindar starfsstöðvar eða fá sent með pósti eða Dropp.

4. Sendingakostnaður

RML innheimtir sendingakostnað á vörum sem seldar eru í vefverslun og viðskiptavinur fær sendar. Verð fer eftir þyngd vara og verðskrá hjá Póstinum og Dropp.

5. Rafrænir reikningar

RML tekur á móti reikningum í rafrænu formi í gegnum skeytamiðlara. RML getur einnig sent viðskiptavinum sínum reikninga með sama hætti. Allir reikningar til viðskiptavina eru sendir rafrænt í heimabanka og einnig í tölvupósti séum við með skráð netfang. Þá geta viðskiptavinir nálgast sína reikninga á Mínar síður á heimasíðu RML. Allar fyrirspurnir vegna bókhalds og reikninga, fyrir hreyfingayfirlit og fleira varðandi bókhald skal senda á bokhald@rml.is


RML stefnir að því að útgáfa rafrænna reikninga verði í forgrunni til að lágmarka pappírsnotkun og sýna með því samfélagslega ábyrgð og lágmarka sóun í samfélaginu. Áfram verður þó hægt að fá reikninga senda með bréfpósti og þarf að óska eftir því sérstaklega.

Karfan mín

Karfan er tóm

Skoða vörur