Við hjálpum þér að byggja upp sjálfbæran og arðbæran búskap

Fólkið á bakvið ráðgjöfina
Við hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins vinnum að því að styðja bændur og ræktendur með faglega ráðgjöf, fræðslu og nýstárlegar lausnir. Markmið okkar er að auðvelda sjálfbæran og arðbæran rekstur með því að sameina þekkingu, rannsóknir og reynslu á einum stað.

Sagan okkar
Þekking og stuðningur fyrir íslenskan landbúnað
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins ehf. (RML) er leiðandi í ráðgjöf, rannsóknum og þróun fyrir íslenskan landbúnað. Við vinnum náið með bændum og öðrum í greininni til að tryggja sjálfbæran rekstur, bætt afköst og velferð bústofnsins.
Gildin okkar
Við erum metnaðarfull og eitt af því sem við teljum mikilvægt að okkar viðskiptavinir þekki eru gildin okkar,
Merki um trúverðugleika
Rótgróin gæði, staðfest á blaði
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins ehf. (RML) er leiðandi í ráðgjöf, rannsóknum og þróun fyrir íslenskan landbúnað. Við vinnum náið með bændum og öðrum í greininni til að tryggja sjálfbæran rekstur, bætt afköst og velferð bústofnsins.
Jafnlaunavottun
Markmið jafnlaunavottunar er að tryggja jafnan rétt kynjanna á vinnumarkaði og koma í veg fyrir kynbundinn launamun.
Umhverfisstjórnun
Markviss ráðgjöf í umhverfis- og loftslagmálum er öflugt bústjórnartæki bænda.
Gæðastjórnun
Við leggjum áherslu á gæði í allri okkar þjónustu, slíkt eflir landbúnað um land allt.
Í samstarfi við bændur og aðila í matvælaframleiðslu
Lausnir þróaðar með bændum – notaðar af atvinnubændum um allt land
Við vinnum náið með bændum, búgreinafélögum og fyrirtækjum í matvæla- og landbúnaðargeiranum til að þróa lausnir sem nýtast í raunverulegum aðstæðum. Hvort sem um er að ræða skýrslugerð, rekstraryfirsýn eða eftirlit með velferð búfjár, þá treysta viðskiptavinir okkar á tækni sem einfalda daglegan búrekstur og styðja við sjálfbæra framtíð íslensks landbúnaðar.
Starfsstöðvar
RML er með starfsstöðvar víða um land til að vera nær þér og þínum þörfum.
Viltu vera memm?
Sækja um starf
RML er öflugt þekkingarfyrirtæki í landbúnaði og tengdum greinum. Hjá okkur starfar samhentur hópur fólks sem sinnir fjölbreyttum störfum í þágu landbúnaðar. Við auglýsum öll laus störf á heimasíðu okkar. Hafir þú áhuga á að sækja um þá hvetjum við þig til að senda inn umsókn ásamt ferilsskrá. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Öllum umsóknum um auglýst störf verður svarað þegar ráðið hefur verið í starfið. Almennar umsóknir eru geymdar í sex mánuði.