Logo
Logo

Allt á einum stað

Forrit fyrir íslenskan landbúnað

Hér finnurðu öll forrit og skýrsluhaldslausnir Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins. Hvort sem þú vilt fylgjast með búrekstri, bæta afurðir eða auka velferð bústofns, bjóðum við lausnir sem byggja á traustri þekkingu, rannsóknum og nýjustu tækni – til að styðja við sjálfbæran og arðbæran landbúnað.

Forrit fyrir íslenskan landbúnað

Lausnir fyrir hvern bónda

Traust forrit og skýrsluhald sem einfaldar búreksturinn þinn til muna

Við bjóðum upp á sérsniðin stýrikerfi og skýrsluhaldslausnir sem gera bændum kleift að fylgjast með rekstri, afurðum og velferð búfjár – allt á einum stað. Gagnadrifin ákvarðanataka bætir nýtingu, eykur skilvirkni og styður við sjálfbæra þróun í landbúnaði.

dkBúbót

dkBúbót

dkBúbót er bókhaldsforrit sem er sérstaklega ætlað bændum og sniðið að þörfum íslensks landbúnaðar.

Skoða
Fjárvís

Fjárvís

Fjárvís er skýrsluhaldskerfi í sauðfjárrækt. Fjárvís er eitt af þeim verkfærum sem sauðfjárbóndi notar við ákvarðanatöku í búrekstri.

Skoða
Heiðrún

Heiðrún

Heiðrún er skýrsluhaldskerfi í geitfjárrækt. Kerfið er sérsniðið að þörfum geitfjárbænda.

Skoða
Huppa

Huppa

Huppa er afurða- og skýrsluhaldskerfi í nautgriparækt. Þar geta nautgripabændur skráð upplýsingar er tilheyra skýrsluhaldi nautgriparæktar og fengið margvíslegar upplýsingar um gripina sína.

Skoða
Jörð

Jörð

Jörð er skýrsluhaldskerfi í jarðrækt. Skýrsluhaldið nær til grunnskráningar um túnin, skráningar á uppskeru, ræktun, ástandi, áburðargjöf og notkunar á varnarefnum. Einnig heldur kerfið utan um niðurstöður efnagreininga á heyi og jarðvegi. Jörð er þannig eitt af verkfærum sem bændur nota við áætlanagerð og ákvarðanatöku í búrekstrinum.

Skoða
WoldFengur

WoldFengur

WorldFengur er upprunaættbók íslenska hestsins. WorldFengur safnar saman upplýsingum um íslenska hesta innan landa FEIF (alþjóðasamtaka eigenda íslenska hestsins) í einn viðurkenndan miðlægan gagnagrunn sem er aðgengilegur á vefnum. Í Worldfeng er hægt að finna upplýsingar um íslenska hestinn hvar sem er í heiminum.

Skoða

Nýjustu fréttir

Sjá allar greinar
Hrossaræktin 2026 - Ráðstefna

Hrossaræktin 2026 - Ráðstefna

29. OKTÓBER 2026

Hin árlega hrossaræktarráðstefna fagráðs í hrossarækt fer fram í reiðhöll Spretts, laugardaginn 7. nóvember og byrjar klukkan 13:00. Aðgangur að ráðstefnunni er ókeypis og allt áhugafólk um hrossarækt er hvatt til að mæta.

Kvóti 19042 er besta nautið fætt 2019

Kvóti 19042 er besta nautið fætt 2019

26. OKTÓBER 2026

Viðurkenning Nautastöðvar Bændasamtaka Íslands, fyrir besta nautið í árgangi 2019, var veitt á fagfundi nautgriparæktarinnar fimmtudaginn 22. október s.l.

Ný Heimasíða

Ný Heimasíða

26. OKTÓBER 2026

Ný heimasíða RML í loftið í nóvember 2026

Ársfundur RML 2026

Ársfundur RML 2026

23. OKTÓBER 2026

Föstudaginn 30. október á Hótel Stracta á Hellu

Þrettán bú tilnefnd sem ræktunarbú ársins 2026

Þrettán bú tilnefnd sem ræktunarbú ársins 2026

14. OKTÓBER 2026

Fagráð í hrossarækt hefur valið þau hrossaræktarbú sem tilnefnd eru til árlegrar heiðursviðurkenningar Bændasamtaka Íslands, ræktunarbú ársins.

Greiningar á frjósemiserfðavísum, bógkreppu eða gulri fitu

Greiningar á frjósemiserfðavísum, bógkreppu eða gulri fitu

1. OKTÓBER 2026

Samhliða samningum RML við MATÍS um framkvæmd riðuarfgerðargreininga bjóðast nú betri kjör á öðrum arfgerðargreiningum sem greind eru á vegum RML hjá MATÍS vegna samlegðaráhrifa. Byggist hagstætt verð á „öðrum arfgerðargreiningum“ m.a. á því að sýnum sé safnað upp og greind á nokkra mánaða fresti, en kostnaðarsamt er að greina aðeins örfá sýni í senn. Þannig er gert ráð fyrir að sýni vegna annarra arfgerðagreininga en vegna riðu mótstöðu sem komið hafa inn í vetur verði greind seinnipartinn í apríl. Sýni sem eiga að ná inn í þessa greiningu þurfa því að berast fyrir 15. apríl til RML.

Þörf á ráðgjöf?

Fáðu faglega ráðgjöf fyrir þinn búrekstur

Hvort sem þú ert að hefja búskap, eða þarft ráðgjöf um rekstur og bústjórn, búfé eða jarðrækt — hvert sem þú ert á leiðinni, þá getum við aðstoðað þig í hverju skrefi.

Karfan mín

Karfan er tóm

Skoða vörur