Logo
Logo

Vandað skýrsluhald í jarðrækt

Vandað skýrsluhald er grunnur að góðum rekstri búsins. Við höfum réttu lausnina fyrir þig.

Vandað skýrsluhald í jarðrækt

Hvað geri ég næst

Panta áskrift að forritinu

Hægt er að panta áskrift að forritum og einnig er þjónusta við notendur forrita vegna aðgangsmála alla virka daga í síma 5165000 eða í gegnum netfangið tolvudeild(hjá)rml.is.

Skoða þjónusturnar

Áburðaráætlun

Með Jörð geta bændur m.a. gert vandaðar áburðaráætlanir á grunni áburðarþarfar og síðan borið saman margar mismunandi áætlanir með tilliti til áburðarverðs og efnainnihalds.

Ákvarðanataka í búrekstrinum

Skýrsluhaldið nær til grunnskráningar um túnin, skráningar á uppskeru, ræktun, ástandi, áburðargjöf og notkunar á varnarefnum. Einnig heldur kerfið utan um niðurstöður efnagreininga á heyi og jarðvegi. Jörð er þannig eitt af verkfærum sem bændur nota við áætlanagerð og ákvarðanatöku í búrekstrinum.

Túnakort

Ef bændur láta ráðunauta teikna fyrir sig túnkort eða þegar jarðabótaúttektir eru teiknaðar í Túnkortagrunn geta bændur skoðað loftmynd af viðkomandi túnum á Jörð.is. Túnkort er forsenda þess að réttar túnastærðir séu notaðar við áburðarútreikninga í kerfinu.

Þjónusta við skýrsluhaldið

Öflugt teymi innan RML aðstoðar ef lagfæringa eða breytinga er þörf við skýrsluhaldið. Best er að senda tölvupóst á skyrsluhald@rml.is og erindinu verður svarað eins fljótt og hægt er.

Ráðgjöf er lykillinn að árangri

Fáðu faglega ráðgjöf fyrir þinn búrekstur

Við bjóðum þér að hafa samband og nýta þér sérfræðiþekkingu okkar til að bæta reksturinn, auka framleiðni og ná betri árangri.

Karfan mín

Karfan er tóm

Skoða vörur