Logo
Logo

Jarðræktar- og fóðurráðgjöf

Sprotinn plús - Jarðræktar- og fóðurráðgjöf

Sprotinn plús - Jarðræktar- og fóðurráðgjöf

Sprotinn +

Hugsunin er að ná sem bestri heild í þessum nátengdu þáttum búskaparins í sama pakkanum.

Um er að ræða 15 klukkutíma pakka með tveimur heimsóknum sem eru án komugjalds, önnur tengd jarðræktinni og hin tengd fóðrun.

Verð: Kr. 179.250 + vsk., innheimt verður fyrir Sprota+ í tvennu lagi á árinu, annars vegar í lok nóvember og hins vegar í lok febrúar.

Sækja um aðgang

Jarðræktarhlutinn er sá sami og nú er innan Sprotans sem felur í sér almenna jarðræktarráðgjöf sniðna að þeim þörfum hvers bús. Við bætist fóðurhluti sem felur í sér fóðuráætlun, túlkun á heyefnagreiningum, vöktun á efnainnihaldi mjólkur og nyt í Huppu ásamt heimsókn, eins og áður sagði.

Unnið er með hverju og einu búi af teymi starfsmanna RML til að ná fram þeirri sérþekkingu sem þarf í hvorn hluta fyrir sig. Þannig geta það verið að tveir ráðunautar séu tengiliðir við búið, annar vegna jarðræktar og hinn vegna fóðrunar.

Það er von RML að með heildstæðum pakka sem þessum náist betri samfella og tenging milli öflunar fóðurs, innihalds og nýtingar þess.

Sterkari búrekstur með réttum stuðningi

Ráðgjafateymi

Fáðu réttu lausnirnar fyrir þinn búskap – frá kynbótum og fóðrun til jarðræktar og skýrsluhalds. RML styður þig í að byggja upp arðbæran og sjálfbæran búrekstur.

Þórey Ólöf Gylfadóttir

Þórey Ólöf Gylfadóttir

Ráðunautur

Senda tölvupóstHringja

Þörf á ráðgjöf?

Fáðu faglega ráðgjöf fyrir þinn búrekstur

Hvort sem þú ert að hefja búskap, eða þarft ráðgjöf um rekstur og bústjórn, búfé eða jarðrækt — hvert sem þú ert á leiðinni, þá getum við aðstoðað þig í hverju skrefi.

Karfan mín

Karfan er tóm

Skoða vörur