Rýnihópar í Fjárvís, Heiðrúnu og Huppu
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML) vinnur að endurhönnun skýrsluhaldskerfanna og óskar nú eftir bændum og búfjáreigendum í rýnihópa fyrir Huppu, Heiðrúnu og Fjárvís til að hafa áhrif á þróun þeirra.
Til að kerfin nýtist sem best viljum við móta þau í samráði við notendur. Nú þegar eru starfandi rýnihópar fyrir Heiðrúnu og Huppu og hefur framlag þátttakenda verið dýrmætt fyrir þróunina. Við viljum byggja áfram á því samstarfi og bjóða fleiri þátttakendur velkomna í þá hópa, auk þess að stofna rýnihóp fyrir Fjárvís.
Stefnt er að 8–12 þátttakendum í hverjum hópi sem endurspegla á sem bestan hátt notendur með fjölbreytt sjónarmið og tæknikunnáttu. Við leitum að bændum og búfjáreigendum með ólíkan bakgrunn og mismikla reynslu af kerfunum. Ekki þarf sérstaka tölvuþekkingu – reynsla þín úr daglegum störfum er það sem skiptir máli.