Fyrstu skrefin í búskap
Aðstoð og leiðsögn frá draumi til raunverulegs reksturs
Að hefja búskap er stórt skref og krefst góðs undirbúnings. RML býður nýliðum í landbúnaði heildstæða ráðgjöf sem nær frá stefnumótun og fjárhagsáætlunum til tækni- og framleiðsluráðgjafar. Við hjálpum þér að finna bestu leiðina fyrir þitt bú, undirbúa fjárfestingar, sækja styrki og byggja upp rekstur sem stenst tímans tönn. Með okkar sérfræðingum færðu stuðning og innsýn til að taka örugg og markviss skref inn í landbúnað.
-960x640.webp)
Hefja búskap
Að mörgu að hyggja
Þegar hefja skal búskap vakna margar spurningar, hvort sem ætlunin er að taka við búi eða kaupa jörð. Aðstæður hjá hverjum og einum eru ólíkar og því engin ein rétt leið sem hægt er að fara. Af reynslu þekkja starfsmenn RML þær hindranir sem geta komið upp þegar ferlið við að hefja búskap hefst og jafnframt þau tækifæri sem eru til staðar.
Hjá okkur færðu aðstoð við
- Rekstrar-/viðskiptaáætlun
- Samningagerð
- Aðstoð við umsóknir
- Meginverkefni er að veita heildstæða og þvegfaglega ráðgjöf.
Megin markmið
Markmið starfsins er að greina og meta stöðu núverandi reksturs viðkomandi rekstraraðila og benda á styrkleika og veikleika í rekstri og jafnframt að veita heildstæða ráðgjöf til að ná enn betri árangri í núverandi rekstri. Á sama hátt er markmiðið að benda á nýja möguleika ef vilji er til þess að takast á við nýja atvinnustarfsemi eða þróa aðra atvinnustarfsemi samhliða þeim rekstri sem fyrir er á viðkomandi lögbýli.
Gagnlegar upplýsingar
Tengdar greinar
Sjá allar greinarRáðgjöf er lykillinn að árangri
Fáðu faglega ráðgjöf fyrir þinn búrekstur
Við bjóðum þér að hafa samband og nýta þér sérfræðiþekkingu okkar til að bæta reksturinn, auka framleiðni og ná betri árangri. Hjá okkur færð þú sérsniðna ráðgjöf sem byggir á gögnum, reynslu og nýjustu aðferðum í landbúnaði – hvort sem þú þarft aðstoð við búfjárrækt, jarðrækt, fóðrun eða skýrsluhald.



