Logo
Logo
1. OKTÓBER 2026

Greiningar á frjósemiserfðavísum, bógkreppu eða gulri fitu

Samhliða samningum RML við MATÍS um framkvæmd riðuarfgerðargreininga bjóðast nú betri kjör á öðrum arfgerðargreiningum sem greind eru á vegum RML hjá MATÍS vegna samlegðaráhrifa. Byggist hagstætt verð á „öðrum arfgerðargreiningum“ m.a. á því að sýnum sé safnað upp og greind á nokkra mánaða fresti, en kostnaðarsamt er að greina aðeins örfá sýni í senn. Þannig er gert ráð fyrir að sýni vegna annarra arfgerðagreininga en vegna riðu mótstöðu sem komið hafa inn í vetur verði greind seinnipartinn í apríl. Sýni sem eiga að ná inn í þessa greiningu þurfa því að berast fyrir 15. apríl til RML.

Niðurstöður

Sú nýjung verður nú í boði að í stað þess að bjóða upp á greiningu á Þokugeni eða Lóugeni verður í boði ein frjósemisgreining sem gefur upplýsingar um báða þessa breytileika og koma niðurstöður þá bæði fyrir Þoku og Lóu.

Eftirfarandi greiningarflokkar verða í boði (öll verð án vsk.):

  1. Eingöngu riðuarfgerðargreining 1.750 kr. (líkt og áður hefur verið kynnt)
  2. Riðuarfgerðargreining + bógkreppugreining: 4.300 kr.
  3. Riðuarfgerðargreining + frjósemisgreining: 4.300 kr.
  4. Bógkreppugreining: 3.000 kr.
  5. Frjósemisgreining: 3.000 kr.

Þar sem greining á gulri fitu er framkvæmd með öðrum hætti þá nást ekki samlegðaráhrif af riðuarfgerðargreiningum sem nýtast til að minnka kostnað við greiningu á gulri fitu. Greining á gulri fitu kostar 8.000 kr. án vsk.

Öll sýni skulu send inn til RML, annaðhvort á Hvanneyri eða starfstöð RML á Höfðabakkanum í Reykjavík. Mikilvægt er að sýni sem eiga að fara í aðra greiningu en eingöngu riðu séu höfð sér í poka og það vandlega merkt í hvaða greiningu þau eiga að fara, ásamt upplýsingum um grip og greiðanda fyrir sýnið. Ef þetta er ekki aðskilið fara öll sýni í riðuarfgerðargreiningu. Þetta eru því 5 flokkar sem eru í boði og sýni í hverjum flokki þurfa að vera sér.

Skýrt skal tekið fram að hér er ekki verið að bjóða upp á viðbótargreiningu á DNA úr áður greindum sýnum. Ef ætlunin er að fá bógkreppugreiningu eða frjósemisgreiningu úr sýni sem einnig á að fara í riðuarfgerðargreiningu (greiningar flokkur 2 og 3) þarf það að liggja fyrir þegar sýnið er sent inn. Ef stendur til að bíða eftir niðurstöðu fyrir riðuarfgerð áður en ákveðið er hvort eigi að skoða meira í sama einstakling, þarf að senda inn nýtt sýni.

Sýni sem fara í aðrar greiningar en riðuarfgerðargreiningu þarf að forskrá í Fjárvís undir „aðrar arfgerðargreiningar“. Þannig getur þurft að forskrá sama sýnanúmerið tvisvar á mismunandi stað í Fjárvís ef gripur er bæði að fara í riðuarfgerðargreiningu og einhverja aðra greiningu.

Greiningar vegna „annarra arfgerðargreininga“ (á við um flokka 2 til 5) fara að lágmarki fram í apríl, ágúst og okóber og þurfa sýni því að vera komin í síðasta lagi fyrir 15. dag í viðkomandi mánuði til að ná inn í greiningu þess mánaðar. Best er hinsvegar að þau berist fyrr, því þegar nægilegt magn er komið inn af sýnum í viðkomandi greiningu yrði framkvæmd greining.

Hægt er að fá flýtimeðferð (t.d. ef óskað er eftir bógkreppu greiningu í desember og ekki vilji til að bíða fram í apríl). Kostar þá bógkreppugreining og frjósemisgreining hvor um sig 7.300 kr. pr. sýni.

Líkt og verið hefur, þá verða niðurstöður keyrðar inn í Fjárvís og þar eru þær í raun afhentar bóndanum. Forskráning sýnanna er því nauðsynleg til þess að niðurstöður berist.


Eyþór Einarsson

Eyþór Einarsson

Ráðunautur

Nýjustu straumar í landbúnaði

Sjá allar greinar
Hrossaræktin 2026 - Ráðstefna

Hrossaræktin 2026 - Ráðstefna

29. OKTÓBER 2026

Hin árlega hrossaræktarráðstefna fagráðs í hrossarækt fer fram í reiðhöll Spretts, laugardaginn 7. nóvember og byrjar klukkan 13:00. Aðgangur að ráðstefnunni er ókeypis og allt áhugafólk um hrossarækt er hvatt til að mæta.

Kvóti 19042 er besta nautið fætt 2019

Kvóti 19042 er besta nautið fætt 2019

26. OKTÓBER 2026

Viðurkenning Nautastöðvar Bændasamtaka Íslands, fyrir besta nautið í árgangi 2019, var veitt á fagfundi nautgriparæktarinnar fimmtudaginn 22. október s.l.

Ný Heimasíða

Ný Heimasíða

26. OKTÓBER 2026

Ný heimasíða RML í loftið í nóvember 2026

Ársfundur RML 2026

Ársfundur RML 2026

23. OKTÓBER 2026

Föstudaginn 30. október á Hótel Stracta á Hellu

Þrettán bú tilnefnd sem ræktunarbú ársins 2026

Þrettán bú tilnefnd sem ræktunarbú ársins 2026

14. OKTÓBER 2026

Fagráð í hrossarækt hefur valið þau hrossaræktarbú sem tilnefnd eru til árlegrar heiðursviðurkenningar Bændasamtaka Íslands, ræktunarbú ársins.

Greiningar á frjósemiserfðavísum, bógkreppu eða gulri fitu

Greiningar á frjósemiserfðavísum, bógkreppu eða gulri fitu

1. OKTÓBER 2026

Samhliða samningum RML við MATÍS um framkvæmd riðuarfgerðargreininga bjóðast nú betri kjör á öðrum arfgerðargreiningum sem greind eru á vegum RML hjá MATÍS vegna samlegðaráhrifa. Byggist hagstætt verð á „öðrum arfgerðargreiningum“ m.a. á því að sýnum sé safnað upp og greind á nokkra mánaða fresti, en kostnaðarsamt er að greina aðeins örfá sýni í senn. Þannig er gert ráð fyrir að sýni vegna annarra arfgerðagreininga en vegna riðu mótstöðu sem komið hafa inn í vetur verði greind seinnipartinn í apríl. Sýni sem eiga að ná inn í þessa greiningu þurfa því að berast fyrir 15. apríl til RML.

Karfan mín

Karfan er tóm

Skoða vörur