Logo
Logo
22. APRÍL 2026
Sauðfjárrækt

Kynbótamat

Kynbótamat sauðfjár

Kynbótamat (BLUP)
Kynbótamat er reiknað út frá upplýsingum úr skýrsluhaldi, í því felst mat á kynbótagildi gripanna þ.e. hverju þeir eru líklegir til að skila til afkvæma sinna. Í sauðfjárrækt er reiknað kynbótamat fyrir gerð og fitu sláturlamba, ómvöðva og ómfitu úr lambadómum, fallþunga og lífþunga haustlamba, ásamt frjósemi og mjólkurlagni áa. Kynbótamatið er staðlað þannig að meðaltal síðustu 10 árganga er 100.

Gerð, fita og ómvöðvi
Ómvöðva (ÓMV) - og ómfitu (ÓMF) mælingar úr lambaskoðunum, sem byggja á bakvöðvamælingu og fitu yfir bakvöðva, eru keyrðir sem tengdir eiginleikar saman í mati með GERÐ og FITU sláturlamba. Með því eykst öryggi kynbótamatins fyrir slátureiginleikana og það lagar bjögun á gerðarmati hrúta sem mikið er sett á undan. Í líkönum fyrir GERÐ, FITU, ÓMV og ÓMF er leiðrétt fyrir þungaflokki, kyni, búi og ári.

Fallþungi
Fallþunga- og lífþungamælingar haustlamba eru keyrðar saman í kynbótamati sem tengdir eiginleikar. Einkunnir fyrir þunga skiptast svo niður í einkunnir fyrir bein áhrif og mæðraáhrif. Einkunnir fyrir bein áhrif eiga að vera mat á vaxtargetu lambanna sjálfra. Einkunnir fyrir mæðraáhrif eiga að vera mat á afurðasemi áa/dætra. Í líkönum fyrir þunga er leiðrétt fyrir kyni, burði lamba, fjölda lamba sem gengu með móður, aldri móður, búi, ári og aldri lamba við vigtun/slátrun.

Mjólkurlagni og frjósemi
Upplýsingar um afurðastig og fædd lömb fyrstu fjögur afurðaár áa er notað til að reikna mat fyrir mjólkurlagni og frjósemi. Í samsettri einkunn fyrir mjólkurlagni hefur hvert ár jafnt vægi (25%). Í samsettri einkunn fyrir frjósemi er vægi hvers árs breytilegt, vægi 1 vetra er 10%, vægi 2 vetra er 60%, vægi 3 og 4 vetra er 15% hvort ár.

Heildareinkunn kynbótamats
Gerð 25%
Fita 5%
Fallþungi bein áhrif 20%
Fallþungi mæðraáhrif 20%
Frjósemi 30%


Skylt kynbótastarf

Forystufé

22. APRÍL 2026

Forystufé er sérstakur hluti af íslenska sauðfjárstofninum. Það er þekkt fyrir árvekni, sjálfstæði og ratvísi. Í gegnum tíðina hefur forystufé verið notað til að leiða annað fé, til dæmis á milli staða og við erfiðar aðstæður. Forystufé er oft léttbyggt og háfætt og getur verið í mörgum litum. Það hefur skipað sérstakan sess í íslenskum landbúnaði um aldir og er mikilvægur hluti af sögu og menningu íslenskrar sauðfjárræktar.

Afkvæmarannsóknir

Afkvæmarannsóknir

22. APRÍL 2026

Afkvæmarannsóknir hafa reynst skilvirkt hjálpartæki í ræktunarstarfinu á mörgum sauðfjárbúum á síðustu áratugum. Til þess að hvetja bændur til að bera saman lambhópa undan hrútum sínum hafa verið greiddir styrkir af fagfé sauðfjárræktarinnar að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.

Hrútaskrá

Hrútaskrá

22. APRÍL 2026

Sauðfjársæðingastöð Suðurlands og Sauðfjársæðingastöð Vesturlands gefa ár hvert út hrútaskrá. Hrútaskráin er unnin í samstarfi við ráðunauta RML. Henni er dreift á auglýstum hrútafundum eftir útgáfu en einnig er auglýst er skráin kemur út á vef. Búnaðarsambönd á hverju svæði auglýsa pöntunarform þegar afgreiðsla hefst frá sæðingastöðvunum

Ræktunarmarkmið

Ræktunarmarkmið

22. APRÍL 2026

Í framtíðarskipulagi á ræktun íslenska sauðfjárstofnsins skal lögð áhersla á að varðveita sérkenni hans ásamt því að framrækta þá eiginleika sem mestu máli skipta fyrir sjálfbæra og hagkvæma sauðfjárframleiðslu hverju sinni. Stöðugt þarf að bæta alla helstu framleiðslueiginleika, þ.e. frjósemi, afurðasemi, kjöt- og ullargæði. Viðhalda skal jafnt hyrndu sem kollóttu fé ásamt eiginleikum sem geta haft hagrænt gildi eða talist til séreinkenna s.s. frjósemiserfðavísum, öllum litaafbrigðum, feldfjáreiginleikum og ferhyrndu fé. Sérstaka áherslu skal leggja á heilbrigði stofnsins og endingu gripa. Gæta skal að erfðabreytileika í stofninum og halda aftur af aukningu í skyldleikarækt. Jafnframt þarf að hvetja til samfélagslegrar ábyrgðar þegar kemur að ræktun og verndun þessara stofna.

Karfan mín

Karfan er tóm

Skoða vörur