Logo
Logo
26. OKTÓBER 2026

Kvóti 19042 er besta nautið fætt 2019

Viðurkenning Nautastöðvar Bændasamtaka Íslands, fyrir besta nautið í árgangi 2019, var veitt á fagfundi nautgriparæktarinnar fimmtudaginn 22. október s.l.

Besta nautið í árgangi 2019 var valið Kvóti 19042 frá Ytri-Tjörnum í Eyjafirði. Ræktendur Kvóta 19042 eru þau Elín Nolsöe Grethardsdóttir og Baldur Helgi Benjamínsson.

Um Kvóta

Guðmundur Jóhannesson, ráðunautur í nautgriparækt hjá RML, fór nokkrum orðum um Kvóta 19042 fyrir afhendingu viðurkenningarinnar. Þar kom fram að þetta mun vera í fyrsta skipti sem annar ættliður ræktenda hlýtur þessa viðurkenningu en faðir Baldurs Helga, Benjamín Baldursson, hlaut viðurkeningu fyrir ræktun Vindils 05028 á sínum tíma. Kvóti 19042 hlaut eftirfarandi umsögn fyrir dætur: Dætur Kvóta eru júgurhraustir afurðagripir, mjólkurlagnar kýr með fituhlutfall í mjólk um meðallag og gríðarhátt próteinhlutfall. Þetta eru meðalgripir að stærð, háfættir með boldýpt og útlögur í meðallagi og eilítið veika yfirlínu. Malirnar eru meðalbreiðar, beinar og fremur flatar. Fótstaða er sterkleg og allgleið. Júgurgerðin er meðalgóð, júgurfesta í meðallagi, júgurband mjög áberandi en júgrin tæpast nógu vel borin. Spenar eru vel gerðir, eilítið stuttir en hæfilegir að þykkt og ákfalega vel settir. Mjaltir eru meðalgóðar og lítið um mjaltagalla. Skap þessara kúa er frábært og skapgallaðir gripir mjög fáir í dætrahópnum. Kvóti 19042 hlýtur nafnbótina besta nautið fætt árið 2019.

Hamingjuóskir


Fagráð í nautgriparækt, Nautastöðin, Bændasamtökin og RML óska ræktendum þeim Elínu Nolsöe og Baldri Helga til hamingju með viðurkenninguna og þakka fyrir hönd kúabænda fyrir ræktun þessa góða kynbótagrips.


Guðmundur Jóhannesson

Guðmundur Jóhannesson

Ráðunautur

Nýjustu straumar í landbúnaði

Sjá allar greinar
Hrossaræktin 2026 - Ráðstefna

Hrossaræktin 2026 - Ráðstefna

29. OKTÓBER 2026

Hin árlega hrossaræktarráðstefna fagráðs í hrossarækt fer fram í reiðhöll Spretts, laugardaginn 7. nóvember og byrjar klukkan 13:00. Aðgangur að ráðstefnunni er ókeypis og allt áhugafólk um hrossarækt er hvatt til að mæta.

Kvóti 19042 er besta nautið fætt 2019

Kvóti 19042 er besta nautið fætt 2019

26. OKTÓBER 2026

Viðurkenning Nautastöðvar Bændasamtaka Íslands, fyrir besta nautið í árgangi 2019, var veitt á fagfundi nautgriparæktarinnar fimmtudaginn 22. október s.l.

Ný Heimasíða

Ný Heimasíða

26. OKTÓBER 2026

Ný heimasíða RML í loftið í nóvember 2026

Ársfundur RML 2026

Ársfundur RML 2026

23. OKTÓBER 2026

Föstudaginn 30. október á Hótel Stracta á Hellu

Þrettán bú tilnefnd sem ræktunarbú ársins 2026

Þrettán bú tilnefnd sem ræktunarbú ársins 2026

14. OKTÓBER 2026

Fagráð í hrossarækt hefur valið þau hrossaræktarbú sem tilnefnd eru til árlegrar heiðursviðurkenningar Bændasamtaka Íslands, ræktunarbú ársins.

Greiningar á frjósemiserfðavísum, bógkreppu eða gulri fitu

Greiningar á frjósemiserfðavísum, bógkreppu eða gulri fitu

1. OKTÓBER 2026

Samhliða samningum RML við MATÍS um framkvæmd riðuarfgerðargreininga bjóðast nú betri kjör á öðrum arfgerðargreiningum sem greind eru á vegum RML hjá MATÍS vegna samlegðaráhrifa. Byggist hagstætt verð á „öðrum arfgerðargreiningum“ m.a. á því að sýnum sé safnað upp og greind á nokkra mánaða fresti, en kostnaðarsamt er að greina aðeins örfá sýni í senn. Þannig er gert ráð fyrir að sýni vegna annarra arfgerðagreininga en vegna riðu mótstöðu sem komið hafa inn í vetur verði greind seinnipartinn í apríl. Sýni sem eiga að ná inn í þessa greiningu þurfa því að berast fyrir 15. apríl til RML.

Karfan mín

Karfan er tóm

Skoða vörur